Norðurlöndin þétta raðirnar í gervigreind

Norðurlöndin þétta raðirnar í gervigreind

Ný samnorræn og baltnesk gervigreindarmiðstöð, New Nordics AI, verður opnuð í dag við hátíðlega athöfn. Miðstöðin verður með aðalskrifstofur sína í Stokkhólmi og mun hafa það meginmarkmið að efla samstarf á svæðinu, hraða upptöku gervigreindar og styrkja samkeppnishæfni svæðisins í alþjóðlegu samhengi. Opnunarviðburðurinn fer fram í Helsinki, í tengslum við formennsku Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni.

New Nordics AI er stofnuð í samstarfi fimm leiðandi aðila í gervigreind á svæðinu; Almannróms (Íslandi), AI Sweden (Svíþjóð), AI Finland (Finnlandi), Digital Dogme (Danmörku) og TEK Norge (Noregi). Þessar stofnanir munu þjóna sem starfsstöðvar miðstöðvarinnar í hverju landi fyrir sig og vinna náið með höfuðstöðvunum í Stokkhólmi. Ætlunin er að Eystrasaltsríkin taki þátt í miðstöðinni á komandi misserum. Með því að sameina krafta sína geta löndin auðveldað notkun og þróun gervigreindar og styrkt stöðu sína í málaflokknum í alþjóðlegu samhengi.

„Í gegnum þátttöku í New Nordics AI getum við á Íslandi byggt á styrkleikum nágrannaþjóða okkar í gervigreind og deilt okkar með þeim. Norðurlöndin senda með þessu skilaboð út í heim um samstöðu og áherslu á þróun og innleiðingu gervigreindar sem tekur mið af okkar gildum og menningu. Þar kemur Almannarómur inn með mikla reynslu af þróun tækni sem er sérsniðin að litlu málsvæði og menningu, og mun sú reynsla nýtast miðstöðinni vel í komandi verkefnum fyrir svæðið í heild sinni,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

„Í ljósi breyttrar heimsmyndar og aukinnar þarfar fyrir að efla samkeppnishæfni Evrópu með því að ná forskoti í þróun og innleiðingu gervigreindar, mun New Nordics AI gegna gríðarmikilvægu hlutverki. Hið norræna-baltneska svæði þarf að vera bæði hugað og hungrað þegar kemur að því að nýta sér tæknina til að skapa blómlegri samfélög og atvinnulíf. Við þurfum að láta þannig hugsunarhátt ráða,“ segir Mikael Ljungblom, annar meðstjórnandi setursins í bráðabirgðastjórn.

„Hið norræna vistkerfi gervigreindar er byggt upp á einstökum styrkleikum hverrar þjóðar fyrir sig og er fjöldi metnaðarfullra gervigreindarverkefna þegar farinn af stað í öllum löndunum. Með því að skala það sem virkar og deila þekkingu milli landamæra getum við hraðað þróun og styrkt samkeppnishæfni svæðisins í heild sinni,“ segir Iida Lähdemäki, hinn meðstjórnandi setursins í bráðabirgðastjórn.

Styður við norræna nýsköpun og innleiðingu gervigreindar

Nýja miðstöðin verður vettvangur til að efla samstarf og innleiðingu gervigreindar á svæðinu. Hún mun byggja á styrkleikum stofnaðilanna, auka getu landanna til að nýta gervigreind og hvetja til nýsköpunar og samvinnuverkefna milli fyrirtækja og stofnana. Miðstöðin mun jafnframt styðja við stefnumótun í málaflokknum, miðla þekkingu og efla sameiginlega rödd svæðisins gagnvart Evrópsambandinu.

Við opnunarhátíð miðstöðvarinnar verða fyrstu verkefni hennar, sem eru enn í mótun, kynnt. Þau verða m.a. að koma á fót vettvangi til innleiðingar og túlkunar á nýrri gervigreindarreglugerð Evrópusambandsins, samstarfsvettvangi um stór mállíkön fyrir svæðið og verkefni um samspil gervigreindar og orkunotkunar.

Breiður stuðningur og fjármögnun

Verkefnið nýtur stuðnings stjórnvalda allra norrænu ríkjanna og hlaut í júní sl. stofnframlag frá Norrænu ráðherranefndinni upp á tæpar 570 milljónir íslenskra króna (30 milljónir danskra króna).

„Gervigreindarmiðstöðin er lykilatriði í markmiði okkar um að gera Norðurlöndin að sjálbærasta og tengdasta svæði í heimi. Norrræna-baltneska svæðið hefur einstakt tækifæri til að verða leiðandi í ábyrgri gervigreind, með góðri samvinnu þvert á landamæri og geria og styrkja þannig samkeppnishæfni svæðisins með uppbyggingu sjálfbærrar framtíðar. Ég er stolt af því að Norræna ráðherranefndin styrki og styðji við þetta verkefni. Í miðju alþjóðlegu gervigreindarkapphlaupi kostar að afhafast ekkert. Því gleður það mig að við getum státað af þessu verkefni og að við séum í því saman,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Til viðbótar við Norrænu ráðherranefndina hafa Google, Microsoft og Nordic Innovation þegar samþykkt að veita verkefninu fjárhagslegan stuðning. Nordic Innovation styrkir sérstaklega verkefni miðstöðvarinnar sem snýr að innleiðingu gervigreindartilskipunar Evrópusambandsins.

Fylgstu með viðburðinum

Hægt verður að fylgjast með opnunarviðburðinum í beinni útsendingu hér á heimasíðu miðstöðvarinnar. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um fyrstu verkefin miðtsöðvarinnar; samstarfsvettvang um innleiðingu gervigreindartilskipunarinar, samstarf um stór mállíkön og orkuverkefnið.