Úthlutun Skerfs 2025 - metaðsókn og fjölbreyttar lausnir

Fimmtudaginn 12. mars sl. fór fram formleg úthlutun Skerfs 2025 og veitti ráðherra styrkhöfum viðurkenningu við mikil hátíðarhöld í Iðnó.

Í úthlutun styrkársins 2025 var lagt til að 16 verkefni hlytu styrki fyrir samtals 60 milljónir króna. Aðsókn í sjóðinn var gríðarleg en alls bárust 42 umsóknir fyrir um 170 milljónir króna. Eftirspurnin í Skerf er því töluvert meiri en hægt var að verða við.

Mikill áhugi sýnir að þörfin er skýr: íslensk máltækni skiptir máli fyrir fyrirtæki, stofnanir og almenning og hún þarf að komast í daglega notkun með þessum endalausnum sem við erum að sjá líta dagsins ljós.

Þróun máltækni öflugur hluti af nýsköpun

„Skapandi samfélag tryggir skapandi lausnir. Þróun máltækni er öflugur hluti af nýsköpun og nýtingu gervigreindar til hagsbóta fyrir þjóðina. Máltæknin skilar sér til samfélagsins eftir ýmsum leiðum líkt og fyrri styrkir hafa sýnt fram á.

Verkefnin sem hljóta styrk úr Skerfi að þessu sinni þjóna bæði þörfum barna og fullorðinna og gagnast við íslenskukennslu og við lestrarkennslu svo dæmi séu tekin.

Verkefnin stuðla að nýsköpun á ólíkum sviðum og leggja þannig grunn að því að íslenskan dafni áfram í heimi stafrænnar tækni og gervigreindar“ segir Logi Már Einarsson, ráðherra menningar-, nýsköpunar og háskóla.

Ótal tækifæri til hagnýtingar

„Það er mikil gróska í íslenskri máltækni og ótal tækifæri til hagnýtingar og innleiðingar tækni sem virkar vel á íslensku hjá bæði fyrirtækjum og stofnunum. Við erum virkilega stolt af verkefnunum sem fengu styrk að þessu sinni og hlökkum til að fylgjast með þeim bera ávöxt,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdarstjóri Almannaróms.

Verkefnin sem hljóta styrki í ár eru fjölbreytt og endurspegla bæði nýsköpun og bætt aðgengi að þjónustu á íslensku.

Styrkhafar Skerfs 2025 eru eftirfarandi:

APRÓ – Liðsauki Þróun gervigreindarlausnar á íslensku fyrir sveitarfélög, byggð á aðlagaðri útgáfu af LibreChat.

1.550.000 kr.

Bara tala – Bara krakkar

Þróun nýs snjallforrits sem styður börn við að læra íslensku með gagnvirkum æfingum og máltæknilausnum.
15.000.000 kr.

Belgingur ehf. – Spáfríður

Hugbúnaður sem býr til sjálfvirkar veðurspár á íslensku út frá veðurgögnum.

3.425.000 kr.

Fjölmennt og Miðeind – Auðlesið

Endurbætur á lausn sem einfaldar texta á íslensku svo þeir verði auðlesnari fyrir fólk með lestrarerfiðleika eða sem er að læra málið.

5.250.000 kr.

GET Ráðgjöf ehf. – Synia vörustjórinn

Hugbúnaðarlausn sem gerir leit á íslensku skilvirkari í vefverslunum og vörukerfum með því að skilja íslenskt mál betur.

4.640.000 kr.

Grammatek – Leslingur

Þróun íslenskrar lestrarstiku fyrir Windows sem hjálpar fólki að fylgja texta og fá hann lesinn upp.

2.250.000 kr.

Hljóðbókasafnið og Grammatek – MathCAT Ísland

Þróun lausnar sem gerir talgervlum kleift að lesa stærðfræði, vísindatexta og önnur STEM-tákn á íslensku.

4.135.000 kr.

KatlaCode ehf. – MedModernIceBERT

Þjálfun sérhæfðs íslensks mállíkans sem getur unnið með flókin sjúkragögn og texta í heilbrigðiskerfinu.

2.500.000 kr.

Loaloa

Máltækni í greiningu stafræns efnis Innleiðing íslenskrar máltækni í hugbúnað sem hjálpar stofnunum að skipuleggja, flokka og greina stafrænt efni sitt.

6.000.000 kr.

Miðeind – Lísa

Innleiðing ljóslestrarlausnar í málstað sem gerir notendum kleift að skanna texta og fá hann lesinn eða unninn stafrænt.

5.250.000 kr.

Overcast ehf. – Íslenskt mál í Wagtail

Verkfæri fyrir vefritstjóra sem notar máltækni til að þýða og yfirfara texta sjálfvirkt í vefumsjónarkerfinu Wagtail.

4.300.000 kr.

Raddlist – Málhljóðavaktin

Þróun máltæknilausnar sem styður við kennslu í framburði og læsi með greiningu á íslenskum málhljóðum.

3.500.000 kr.

Sýn ehf. – Málrýnir í ritstjórnarkerfi Vísis

Innleiðing íslensks málrýnis í ritstjórnarkerfi Vísis til að bæta stafsetningu og málfar í fréttum.

2.755.000 kr.

Sýn ehf. – Sjálfvirk textun útvarpsviðtala

Þróun lausnar sem breytir tali úr útvarpsviðtölum sjálfkrafa í texta.

2.800.000 kr.

Sýn ehf. – Sjálfvirk þýðing og yfirlestur skjátexta

Innleiðing máltæknilausna til að þýða og yfirfara skjátexta sjálfvirkt í framleiðsluferlum Sýnar.

1.475.000 kr.

Undralingur – Upplestrarþjálfun með lifandi lestrarbókum.

Þróun lausnar þar sem börn æfa upplestur með gagnvirkum bókum sem bregðast við lestri þeirra.

7.000.000 kr.