Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, hefur fyrir hönd Almannaróms tekið við stöðu stjórnarformanns nýrrar gervigreindarmiðstöðvar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, New Nordics AI. Tilkynnt var um fyrstu stjórn miðstöðvarinnar í dag 19. desember 2025.
Fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI
Stjórn New Nordics AI mun gegna lykilhlutverki í að tryggja að starf miðstöðvarinnar skili sér í sameiginlegri norrænni verðmætasköpun. Meginhlutverk miðstöðvarinnar er að efla samstarf á svæðinu, hraða upptöku gervigreindar og styrkja samkeppnishæfni svæðisins í alþjóðlegu samhengi.
Almannarómur, með stuðningi menningar-, nýsköpunar- ogháskólaráðuneytisins, er stofnaðili miðstöðvarinnar fyrir hönd Íslands. Verkefnið hlaut jafnframt styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.
Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
New Nordics AI var formlega stofnuð í október á þessu ári og byggir á samstarfi fimm leiðandi aðila í gervigreind á svæðinu; Almannróms (Íslandi), AI Sweden (Svíþjóð), AI Finland (Finnlandi), Digital Dogme (Danmörku) og TEK Norge (Noregi).
Þessar stofnanir þjóna sem starfsstöðvar miðstöðvarinnar í hverju landi fyrir sig og vinna náið með höfuðstöðvunumí Stokkhólmi. Ætlunin er að Eystrasaltsríkin taki þátt í miðstöðinni á komandi misserum.
Stjórn New Nordics AI samanstendur af sex meðlimum, einum frá heimalandi hvers stofnanda auk fulltrúa Norrænu ráðherranefndarinnar og verður sem áður segir undir forystu Katrínar Jakobsdóttur.
Dýrmæt reynsla hér á landi
„Ég er afar spennt að taka að mér hlutverk fyrsta stjórnarformanns þessarar mikilvægu miðstöðvar. Þar ætlum við að kortleggja þau nýju tækifæri sem gervigreindin skapar og tryggja að þau nýtist til að efla norræna verðmætasköpun, ásamt því að hvetja til rannsókna, þróunar og innleiðingar á gervigreind. Samtímis mun stjórnin hafa það að leiðarljósi að varðveita sameiginleg norræn gildi okkar: lýðræði, mannréttindi og jafnrétti, í virku samtali við fyrirtæki og stjórnmálamenn á svæðinu. Við búum að dýrmætri reynslu hér á Íslandi þar sem við höfum lagt áherslu á að íslensk tunga verði gjaldgeng í heimi nýrrar tækni,“ segir Katrín Jakobsdóttir stjórnarformaður.
Hraða ábyrgri innleiðingu
„Sem virtur og þekktur leiðtogi á alþjóðasviðinu býr Katrín yfir mikilli pólitískri reynslu af Norðurlöndunum og nýtur víðtæks trausts. Aðkoma Katrínar að New Nordics AI setur skýran tón og markarstefnu um að brúa bilið á milli opinberra stofnana, iðnaðar og alþjóðlegra aðila.
Bakgrunnur Katrínar fellur vel að markmiðum miðstöðvarinnar um að hraða ábyrgri innleiðingu gervigreindar, efla samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og byggja upp alþjóðlega viðurkennda og kraftmikla svæðisbundna starfsemi á sviði gervigreindar. Við erum afar stolt af því að Katrín sé fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI og við hlökkum til samstarfsins.“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Stjórn New Nordics AI skipa:
- Katrín Jakobsdóttir (Ísland): Fyrrverandi forsætisráðherra Íslands og býr yfir einstakri pólitískri innsýn. Í embættistíð sinni var hún drifkraftur í þróun stefnu Íslands í gervigreind.
- Staffan Truvé (Svíþjóð): Fulltrúi hátæknigeirans, meðstofnandi og tæknistjóri Recorded Future. Sem fyrsti stjórnarformaður AI Sweden hefur hann sterk tengsl við sænska tækniiðnaðinn.
- Maria Ervik Løvold (Noregur): Fulltrúi fjármálageirans, er framkvæmdastjóri einstaklingssviðs hjá DNB og situr í framkvæmdastjórn samstæðunnar. Hún býr yfir sérþekkingu á stækkunstafrænnar þjónustu.
- Haktan Bulut (Danmörk): Leiðandi í stafrænni umbreytingu og starfar sem framkvæmdastjóri stafrænna lausna og upplýsingatæknistjóri hjá lífeyrisrisanum ATP.
- Ville Voipio (Finnland): Hann gegnir mikilvægum stjórnarstörfum í iðnaði, en hann er stjórnarformaður bæði hjá alþjóðlega mælitæknifyrirtækinu Vaisala og samtökum tækniiðnaðarins í Finnlandi.
- Cecilia Leveaux (Norræna ráðherranefndin): Yfirráðgjafi stafrænnar þróunar hjá Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði.
Mynd: Baldur Kristjánsson


