Almannarómur verður einn af stofnaðilum nýrrar norrænnar gervigreindarmiðstöðvar sem komið verður á fót í október. Stofnun miðstöðvarinnar hefur verið í undirbúningi frá því á síðasta ári og verður að stórum hluta fjármagnað af norrænu ráðherranefndinni, sem samþykkti á miðvikudag að veita verkefninu styrk upp á rúmlega 550 milljónir króna.
Að miðstöðinni kemur ein stofnun frá hverju Norðurlandanna en ásamt Almannarómi eru það AI Sweden (Svíþjóð), AI Finland (Finnland), Digital Dogme (Danmörk) og IKT-Norge (Noregur). Stefnt er að því að baltnesku löndin muni einnig ganga til liðs við stofnunina þegar fram líða stundir.
„Með þátttöku Almannaróms í norrænni gervigreindarmiðstöð tryggjum við að íslensk tunga og máltækni verði áfram í forgrunni þegar kemur að þróun og innleiðingu gervigreindar á Íslandi. Mikil tækifæri felast í samstarfinu fyrir Ísland en með því gefst okkur færi á að ráðast í verkefni á stærri skala en áður með liðsstyrk gríðarlega öflugra gervigreindareininga á Norðurlöndunum á borð við AI Sweden sem hafa síðustu ár verið að þróa gervigreindarlausnir í heimsklassa,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Miðstöðin mun hafa starfsfólk í öllum aðildarlöndunum en einnig sameiginlegar höfuðstöðvar sem stefnt er að því að verði í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Nánar má lesa um stefnu hinnar nýju gervigreindarmiðstöðvar á heimasíðu verkefnisins á eftirfarandi hlekk: www.newnordics.ai.
Við vekjum einnig sérstaklega athygli á því að þegar hefur verið auglýst starf framkvæmdastjóra stofnunarinnar og hvetjum við öll áhugasöm til að kynna sér málið! Allar upplýsingar er að finna á fyrrnefndri heimasíðu.