Frétt
3. MAÍ 2022

Tölum um framtíðina: Máltækni í atvinnulífi og samfélagi
Atvinnulífsráðstefna Almannaróms og Samtaka atvinnulífsins verður haldin miðvikudaginn 11. maí kl. 14:30-16:30 í Silfurbergi í Hörpu. Ráðstefnunni verður jafnframt streymt á þessum síðum:
Á ráðstefnunni flytja ávörp innlendir og erlendir sérfræðingar í máltækni auk fulltrúa atvinnulífsins. Fjörugar pallborðsumræður taka einnig stóran hluta dagskrárinnar.
Aðgangur er öllum opinn en beðið er um að gestir skrái sig til að hægt sé að áætla fjölda: Skráning
Ráðstefnunni verður jafnframt streymt, til dæmis á Facebook-síðu Almannaróms: facebook.com/almannaromur
Dagskrá
Máltækni í nútíð og framtíð - ávarp
Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms
Íslenskan í alþjóðlegum tækniheimi - ávarp
Xuedong Huang, Technical Fellow and Chief Technology Officer Azure AI, Microsoft
Mikilvægi íslenskunnar í atvinnulífi og samfélagi - pallborð
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyrir Venture Management og formaður stjórnar Almannaróms
AI and Language Learning - ávarp
Steven C. Toy, forstjóri Memrise
Íslenska sem annað mál - pallborð
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus
Gamithra Marga, stofnandi TVÍK
Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs
Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Tiro
Örn Úlfar Sævarsson, hugmyndasmiður og spurningahöfundur. Formaður fulltrúaráðs Almannaróms.
Betri þjónusta með gervigreind og máltækni - pallborð
Anna Björk Nikulásdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Grammateks ehf.
Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Krónunnar
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, forstöðumaður mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, Samtökum atvinnulífsins
Máltækni í daglegu lífi - pallborð
Aðalsteinn Stefánsson, hönnuður á upplýsingatæknisviði Íslandsbanka
Vilhjálmur Þorsteinsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Miðeindar ehf.
Ragnheiður H. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Magga ehf. og stjórnarmaður Almannaróms
Getur máltækni tryggt mannréttindi? - pallborð
Kolbrún Eir Óskarsdóttir, móðir drengs sem nýtir máltækni á hverjum degi í alla tjáningu
Hrönn Birgisdóttir, Iðjuþjálfi og sérfræðingur á velferðasviði hjá Öryggismiðstöð Íslands
Gunnar Thor Örnólfsson, sérfræðingur í talgervingu hjá Háskólanum í Reykjavík
Hlynur Þór Agnarsson, aðgengis- og upplýsingafulltrúi Blindrafélagsins
Björgvin Ingi Ólafsson, meðeigandi hjá Deloitte og stjórnarmaður Almannaróms
Máltæknivegferð Símans - ávarp
Orri Hauksson, forstjóri Símans
Lokaorð
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Máltækniverðlaunin 2022.
Léttar veitingar.
