Almannarómur leiðir alþjóðlegan samstarfsvettvang UNESCO sem stuðlar að fjölbreytni tungumála í gervigreind. Vettvangurinn var settur á laggirnar innan UNESCO að frumkvæði Íslands í febrúar 2025. Reynsla Íslands af því að tryggja stafræna framtíð tungumáls síns er þar í forgrunni.

Um 30 stofnanir frá mismunandi löndum taka þátt í starfsemi vettvangsins, sem Ísland leiðir með UNESCO. Allt eru það fulltrúar tungumnála eða menningarheima sem standa höllum fæti í heimi tækninnar.
Ísland hefur markað sér ákveðinn sess sem leiðandi afl meðal smáþjóða þegar kemur að því að keyra áfram samhent átak þvert á geira til að tryggja stafræna framtíð tungumálsins. Með máltækniáætlunum hefru Ísland sagnað gríðarlegu magni gagna og þróað sérstakar íslenskar lausnir til að tryggja það að hægt sé að nota íslensku í öllum helstu tæknilausnum.

Helsta markmið samstarfsins er að skapa vettvang þar sem hagaðilar með svipaðar áskorir geti komið saman, deilt þekkingu og staðlað aðferðir við öflun gagna fyrir tungumál og menningu og skapað samræmi í framsetningu og meðferð þeirra gagna.
Vettvangurinn var stofnaður af frumkvæði Íslands en stofnun hans var einskonar svar UNESCO við ákalli Íslands um meira alþjóðlegt samstarf og stuðning á þessu sviði, milli landa með sambærilegar áskoranir, alþjóðastofnana og tæknirisa.
Hugmyndin að honum var sett fram í skjalinu Íslenska aðferðin, sem Almannarómur gaf út í samstarfi við menningar- og viðskitparáðuneytið og Miðeind, þar sem farið var yfir vegferð Íslands á sviði máltækni og samstarf Íslands við OpenAI um að kenna mest notaða mállíkani heims ChatGPT íslensku.
Eitt helsta verkefni vettvangsins er að setja saman þekkingarbrunn um hvernig varðveita megi tungumál og menningu í gervigreind. Verið er að safna saman reynslusögum, verkefnum og dæmum af árangursríkri aðferðafræði víða um heim og er markmiðið að gefa þær út undir ákveðnum flokkum svo þær nýtir fleiri þjóðum. Þar gæti þjóð sem er til dæmis rétt að hefja gagnaöflunarátak sitt farið inn og nálgast aðgengilegar upplýsingar um hvernig aðrar þjóðir tækluðu það mál, svo eitthvað sé nefnt.
Einnig skapar vettvangurinn tengslanet og eykur samstarfsmöguleika þeirra þjóða og stofnana sem eru á svipuðum stað hverju sinni.
