Skerfur er sjóður sem styrkir verkefni sem fela í sér innleiðingu og/eða hagnýtingu á íslenskri máltækni, í samræmi við áætlun um íslenska máltækni 2.0.

Skerfur veitir styrki til verkefna sem fela í sér innleiðingu og/eða hagnýtingu á íslenskri máltækni, í samræmi við áætlun um íslenska máltækni 2.0.
Styrkjum er úthlutað til verkefna sem styðja við innleiðingu eða þróun hagnýtra endalausna sem byggja á íslenskri máltækni. Styrkjum er því ekki úthlutað til verkefna sem miða að þróun eða viðhaldi grunninnviða máltækni. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir og er úthlutað til eins árs í senn.
Styrkveiting er háð því að verkefni styðji við meginmarkmið máltækniáætlunar um að gera íslensku gjaldgenga í stafrænum heimi og að stuðla að aukinni notkun á íslensku í tæknivörum og hugbúnaði.
Opna umsóknarvef →
Markmiðið með sjóðnum er að stuðla að því að gera íslensku gjaldgenga í stafrænum heimi. Afurðir styrkjanna hafa verið margvíslegar og hafa mörg þeirra vaxið og dafnað í kjölfarið.
Verkefnastjórn máltækniáætlunar leggur mat á umsóknir og verður m.a. horft til þátta á borð við:
01
Mikilvægis verkefnis fyrir aukna verðmætasköpun/bætta þjónustu.
02
Skalanleika verkefnis, þ.e.a.s. hvernig umsækjandi sér það þróast, stækka og nýtast fleirum með það að markmiði að innleiðingin eða hagnýtingin bæti framboð tækni á íslensku og/eða auki þjónustu.
03
Gildi og ávinnings fyrir stöðu íslenskrar tungu í tækni.
Verkefnastjórn máltækniáætlunar þannig skipuð:
→
Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður, skipuð af Almannarómi
→
Magga Dóra Ragnarsdóttir, skipuð af Almannarómi
→
Hallgrímur J. Ámundason, skipaður af menningar- og viðskiptaráðherra
Áherslur verkefnastjórnar fyrir úthlutun 2026-2027
Almannarómur fer með umsýslu styrkja menningar- og viðskiptaráðuneytisins til innleiðingar og hagnýtingar íslenskrar máltækni.
Um styrkina gilda reglur nr. 1147/2024 frá ráðherra sem birtust í Stjórnartíðindum 16. október 2024.
Til viðbótar þeim skilyrðum sem þar koma fram skal verkefnastjórn máltækniáætlunar skilgreina reglur úthlutunar og áherslur hverju sinni. Fyrir þessa úthlutun sjóðsins veturinn 2025-2026 eru þær eftirfarandi.
Skerfur - Innleiðingar- og hagnýtingarstyrkir máltækniáætlunar
Reglur um úthlutun 2026-2027
1 gr. Styrkhæfi verkefna
2. gr. Umsóknir
3. gr. Viðmið við úthlutun
4. gr. Úthlutun og skilmálar.
Samþykkt af verkefnastjórn máltækniáætlunar
Reykjavík, 23.11.25
02
Úthlutunarreglur ráðuneytis
Reglur ráðuneytisins má finna á eftirfarandi hlekk:
Reglurnar voru birtar í Stjórnartíðindum þann 16. október 2024. Mikilvægt er að umsækjendur um styrkinn kynni sér þessar reglur vel og tryggi að verkefni sem sótt er um falli að þeim.
