Íslenska í tækni

Kjarna-

verkefni

Af hverju skiptir

þetta máli?

Af hverju skiptir þetta máli?

Til þess að gervigreind og önnur tækni nýtist fólki, fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi þarf hún að virka á okkar tungumáli og vera „læs“ á það mál sem notað er í samskiptum, gögnum og vinnuferlum.

Íslenskugeta er þannig ein af forsendum þess að fyrirtæki og stofnanir hér á landi geti skapað verðmæti á grundvelli nýjustu tækni.

Íslenska í tækni er einnig mikilvægt aðgengismál, svo sem fyrir fatlaða og þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og/eða eru að læra íslensku.

Almannarómur er miðstöð máltækni á Íslandi samkvæmt samningi við Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og hefur í því hlutverki haldið um framkvæmd tveggja máltækniáætlana. Á grundvelli þessara tveggja áætlana hafa orðið til opnir, tæknilegir innviðir sem nýst geta öllum þeim sem vilja þróa tækni á íslensku.

Kjarnaverkefni

Kjarnaverkefni

 Kjarnaverkefni er vinnuheiti yfir stök verkefni sem fjármögnuð eru úr máltækniáætlun. Markmið verkefnanna er ávallt að efla stöðu íslensku í tækni og skilyrði er að afurðir slíkra verkefna séu gefnar út með opnum leyfum. Afurðir kjarnaverkefna eru birtar á Clarin og á Github eða Hugging Face svæðum Almannaróms (með hlekkjum).   

Verkefnastjórn máltækniáætlunar leggur til áherslur við úthlutun fjármuna til kjarnaverkefna hverju sinni. Áherslur verkefnastjórnar á tímabilinu 2024-2026 eru eftirfarandi: 

01

Gagnaöflun: Tryggð áframhaldandi uppbygging á íslenskum gagnasöfnum og aukinn kraftur settur í stækkum Risamálheildar og fjölgun undirmálheilda. 

02

Prófunargögn: Fleiri og betri mælapróf fyrir íslenskugetu ólíkra máltæknilausna.

03

Máltækni sem bætir aðgengi: Áhersla á þróun lausna sem gagnast fötluðum og öðrum sem styðja sig við tæknilausnir í daglegu lífi.  

Ert þú með hugmynd eða tillögu að kjarnaverkefni? Hafðu samband hér → almannaromur@almannaromur.is

Virk verkefni

Virk verkefni

Söfnun talgagna fyrir íslensku

Samstarfsaðilar: Árnastofnun og Grammatek

Með þessu verkefni er unnið að söfnun talgagna ásamt samhliða textagögnum. Þessum gögnum verður bætt í Risamál-heild Árnastofnunar þar sem þau verða aðgengileg til notkunar við þróun og rannsóknir.  

Rauntímatextun

Samstarfsaðilar: Miðeind

Með þessu verkefni er unnið að opnu líkani em mun geta tekið við íslensku tali og skilað enskum skjátexta í rauntíma.

Mælapróf fyrir íslensku

Samstarfsaðilar: Árnastofnun

Með þessu verkefni er unnið að gerð nýrra mæliprófa til að mæla getu mállíkana í íslensku. Niðurstöður prófanna verða birtar á sameiginlegu mælaborði máltækniáætlunar og er markmiðið meðal annars að bæta upplýsingagjöf til almennings og fyrirtækja um stöðu íslensku í ólíkum máltæknilausnum 

Talgreining fyrir kóðaskipti og sérsöfn

Árnastofnun, Háskólinn í Reykjavík og Tiro

Með þessu verkefni er unnið að greiningum á villu í talgreiningu sem stafa af enskuslettum (kóðaskiptum) og sérnöfnum, ásamt þróun á betri þjálfunaraðferðum til að leysa þann vanda.  

Gagnasafn og útskrift fyrir íslenskt táknmál

Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Samskiptamiðstöð

Með þessu verkefni er unnið að opnu líkani em mun geta tekið við íslensku tali og skilað enskum skjátexta í rauntíma.

Málvöllur

Samstarfsaðilar: Málvöllur

Þróun á opnum vettvangi þar sem notendur geta borið saman og greitt atkvæði um gæði svara mállíkana. Niðurstöðurnar verða birtar á mælaborði máltækniáætlunar og munu hjálpa notendum við val á líkönum.  

Mælapróf fyrir íslensku

Samstarfsaðilar: Árnastofnun

Með þessu verkefni er unnið að gerð nýrra mæliprófa til að mæla getu mállíkana í íslensku. Niðurstöður prófanna verða birtar á sameiginlegu mælaborði máltækniáætlunar og er markmiðið meðal annars að bæta upplýsingagjöf til almennings og fyrirtækja um stöðu íslensku í ólíkum máltæknilausnum 

Barnaraddir

Samstarfsaðilar: Gammatek

Með þessu verkefni er unnið að þróun á tveimur íslenskum barnaröddum (drengs og stúlku) sem tryggja munu að börn sem nota tjáskiptabúnað geti tjáð sig með röddum sem hæfa þeirra aldri. Þetta verkefni hefur undanþágu frá reglum um útgáfu undir opnum leyfum en vegna persónuverndarsjónarmiða verða raddir eingöngu aðgengilegar í gegnum fagaðila til þeirra sem þær þurfa af heilsufarsástæðum.

Málvöllur

Samstarfsaðilar: Málvöllur

Þróun á opnum vettvangi þar sem notendur geta borið saman og greitt atkvæði um gæði svara mállíkana. Niðurstöðurnar verða birtar á mælaborði máltækniáætlunar og munu hjálpa notendum við val á líkönum.  

Gagnasafn og útskrift fyrir íslenskt táknmál

Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Samskiptamiðstöð

Með þessu verkefni er unnið að opnu líkani em mun geta tekið við íslensku tali og skilað enskum skjátexta í rauntíma.

Barnaraddir

Samstarfsaðilar: Gammatek

Með þessu verkefni er unnið að þróun á tveimur íslenskum barnaröddum (drengs og stúlku) sem tryggja munu að börn sem nota tjáskiptabúnað geti tjáð sig með röddum sem hæfa þeirra aldri. Þetta verkefni hefur undanþágu frá reglum um útgáfu undir opnum leyfum en vegna persónuverndarsjónarmiða verða raddir eingöngu aðgengilegar í gegnum fagaðila til þeirra sem þær þurfa af heilsufarsástæðum.

Eldri verkefni

Eldri verkefni

Á tímabili máltækniáætlunar 2024-2026 hefur fjórum verkefnum þegar verið lokið.  

01

Prófunargögn og mælapróf fyrir opið mælaborð 

02

Gagnaöflun í Risamálheild 

03

Gagnaöflun fyrir talgreiningu náttúrulegs talmáls 

04

Gagnaöflun fyrir barnaraddir í talgervingu 

Verkefni fyrstu máltækniáætlunar

Verkefni fyrstu máltækniáætlunar

Upplýsingar um allar afurðir fyrstu máltækniáætlunar má finna hér.

Ítarefni um afurðirnar má einnig finna í lokaskýrslu verkefnastjóra SÍM, samstarfshópsins sem sá um þróun kjarnaverkefna áætlunarinnar.

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?

Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680