
Almannarómur vinnur stöðugt að því að gera íslensku nothæfa í öllum helstu stafrænu lausnum sem notaðar eru í íslensku samfélagi. Stór hluti af þeirri vinnu snýr að því að eiga í samskiptum og samstarfi við erlend fyrirtæki sem þróa mikið notaðar lausnir um að gera þær virkar á íslensku
Flestar stærstu tæknilausnir heims eru einmitt ekki þróaðar með íslensku í forgrunni. Þess vegna þarf Almannarómur stöðugt að fylgjast með þróuninni, prófa hvernig lausnir virki á íslensku og oft að þrýsta á úrbætur til að tryggja að íslenskir notenur sitji ekki eftir.
Á undanförnum árum hefur verið unnin umfangsmikil grunnvinna svo íslenskan sé tilbúin fyrir nýjustu tækni. Öll nauðsynleg gögn og hugbúnaður fyrir íslensku standa öllum til boða í opnum aðgangi án endurgjalds. Með þessum tæknilegu innviðum og markvissri vinnu undanfarin ár hefur okkur tekist að koma íslensku inn í fjölda lausna.
Sem dæmi má nefna að megnið af lausnum Microsoft, Google, Open AI og fleiri tæknirisa virka vel á íslensku. Yfirlit yfir hversu vel ýmsar lausnir stærstu tæknifyrirtækjanna virka á íslensku má sjá hér að neðan. Lélegur árangur Apple, eins stærsta tæknifyrirtækis heims – og eins þess útbreiddasta á Íslandi, sker sig úr á listanum. Hvorki stýrikerfi Apple, raddaðstoðin Siri eru í boði á íslensku sem veldur því að íslenska er alveg fjarverandi í mörgum af þeim tækjum sem við notum flestalla daga.
Sem hluti af því að tryggja íslenskunni sess í tækni hafa Almannarómur og Íslandsstofa, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, ráðist í átakið „Tryggjum íslenskunni framtíð í tækni“ (e. Unleash Icelandic). Með átakinu er Apple boðið að bætast í hóp þeirra tæknifyrirtækja sem bjóða upp á íslensku. Myndmál átaksins er takki sem táknar hversu einfalt er í raun að innleiða íslenskuna í tæknina. Undirbúningurinn er að baki og lausnirnar eru tilbúnar. Apple er boðið að ýta á takkann og kveikja þannig á íslensku í lausnum sínum.
„Með markvissri vinnu hefur okkur tekist að koma íslensku inn í fjölda lausna. Næsta skref er að íslenskan verði í boði í tækjunum sem flestir Íslendingar nota dags daglega, og þar skiptir Apple miklu máli. Með uppbyggingu íslenskra máltækni höfum við gert innleiðinguna einfalda enda eru öll nauðsynleg gögn og hugbúnaður tilbúin og opin. Þetta er mál sem varðar okkur öll og ég hvet alla sem bera hag íslenskunnar fyrir brjósti til að skrifa undir og taka þannig undir ákallið, Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Lesa má nánar um átakið á www.tryggjumislensku.is
Staða íslensku í tæknilausnum hefur batnað verulega á undanförnum árum. Með markvissri vinnu og hagsmunagæslu hefur tekist að koma íslensku inn í fjölda þeirra lausna sem skipta mestu máli í daglegu lífi fólks og fyrirtækja og almennt stendur hún ágætlega í helstu tæknikerfum.
Hér í töflunni að neðan er dregin saman staða íslensku innan lausna stærstu tæknifyrirtækjanna og lausnunum gefin einkunn á bilinu 1 til 5 eftir því hversu nothæfar þær eru á íslensku.
Skýrasta dæmið um hverju markviss hagsmunagæsla getur skilað er samstarf Íslands og OpenAI. Í kjölfar fyrstu sendiferðar máltækni 2022 opnaðist beint samtal við fyrirtækið sem leiddi til samstarfs sem vakti alþjóðlega athygli og setti Ísland á kortið í þróun gervigreindar.
Íslenska varð þannig fyrsta tungumálið utan ensku sem var innleitt með markvissum hætti í Chat GPT-4.
Íslenska fyrirtækið Miðeind gegndi þar lykilhlutverki með samstarfi við OpenAI sem fólst í því að veita gögn til þjálfunar líkansins, veita endurgjöf á gæðum þess og almennu mati á málskilningi og málmyndun þess


