Glóð

Glóð

Glóð er framtak sem styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að þekkingu, gögnum og reikniafli.

Hvað er Glóð?

Hvað er Glóð?

Glóð er framtak sem styður íslenska nýsköpun í gervigreind með aðgangi að þekkingu, gögnum og reikniafli. Hún tengir saman fyrirtæki, sprota, opinbera aðila og rannsóknarsamfélagið til að hraða þróun og innleiðingu gervigreindarlausna.

Glóð styður bæði byrjendur og lengra komna í þróun gervigreindarlausna. Markmiðið er að lækka þröskulda, hraða nýsköpun og efla hagnýta notkun gervigreindar á Íslandi, með því að bjóða upp á þjónustuna gjaldfrjálst. Öll áhugasöm eru hvött til að hafa samband.

Glóð er hluti af EuroHPC og tengir Ísland við ofurtölvuna LUMI í Finnlandi. Glóð er styrkt að hluta af Evrópusambandinu og er samstarfsverkefni Almannaróms, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Veðurstofunnar, Vísindagarða og Árnastofnunar.

Opna vef →

Framtíðarsýn

Framtíðarsýn

Glóð vinnur að því að styrkja og alþjóðavæða íslenska gervigreindarvistkerfið með beinni tengingu við evrópska ofurtölvu- og uppbyggingu innviða, og stuðla að ábyrgri, skalanlegri og sjálfbærri þróun íslenskra gervigreindarlausna.

Hlutverk

Hlutverk

Glóð knýr fram hraðari þróun á sviði gervigreindarlausna á Íslandi með aðgengi að svo kölluðum afkastamiklum tölvuvinnslum (e. high performance computing, HCP) og sérfræðistuðningi fyrir einyrkja í nýsköpun, sprotafyrirtæki, lítil og meðalstór fyrirtæki og opinberar stofnanir.

Um teymið

Um teymið

Glóð býður upp á sérfræðiþekkingu í gervigreind og ofurtölvum, íslensk gagnasöfn og sameiginlega vinnuaðstöðu í Grósku. Teymið samanstendur af sex aðildarfélögum úr máltækni-, háskóla- og rannsóknarsamfélaginu og hver stofnun tekur að sér þjónustu- og stuðningshlutverk.

Glóð býður upp á sérfræði-þekkingu í gervigreind og ofurtölvum, íslensk gagnasöfn og sameiginlega vinnuaðstöðu í Grósku. Teymið samanstendur af sex aðildarfélögum úr máltækni-, háskóla- og rannsóknar-samfélaginu og hver stofnun tekur að sér þjónustu- og stuðningshlutverk.

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?

Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680