Frétt

Almannarómur og Íslandsstofa, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, hrinda í dag, á degi íslenskrar tungu, af stað átakinu „Tryggjum íslenskunni framtíð í tækni“ (e. Unleash Icelandic). Með átakinu er Apple boðið að bætast í hóp þeirra tæknifyrirtækja sem bjóða upp á íslensku.
Markmið átaksins er tvíþætt. Annars vegar er það að hvetja Apple til að innleiða íslensku í tæki sín og lausnir. Hins vegar er það að vekja alþjóðlega athygli á íslenskum máltæknilausnum. Á undanförnum árum hefur verið unnin umfangsmikil grunnvinna svo íslenskan sé tilbúin fyrir nýjustu tækni, og gögn og hugbúnaður fyrir íslensku standa nú öllum til boða í opnum aðgangi án endurgjalds. Fjöldi tæknifyrirtækja hefur þegar nýtt sér þessar lausnir. Átakið verður einnig keyrt í Bandaríkjunum, þar sem markmiðið er að ná til áhrifafólks í tækniheiminum.
Takki er rauði þráðurinn í myndmáli herferðarinnar og táknar hversu einfalt er í raun að innleiða íslenskuna í tæknina. Undirbúningur er að baki og lausnirnar eru tilbúnar. Apple er boðið að ýta á takkann og kveikja þannig á íslensku í lausnum sínum. Takkinn verður sýnilegur á vefsíðu átaksins, í auglýsingum og á samfélagsmiðlum.
Átakinu verður formlega hleypt af stokkunum í móttöku í Eddu, húsi íslenskunnar, í dag kl. 16:00, í kjölfar verðlaunaafhendingar á degi íslenskrar tungu.
„Íslenskan hefur lifað og dafnað í þúsund ár vegna þess að við höfum hlúð að henni. Til að hún geti dafnað næstu þúsund árin þarf tæknin að skilja hana og tala hana reiprennandi. Við bjóðum Apple að taka þetta skref með okkur og tryggja saman framtíð íslenskunnar,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
„Með markvissri vinnu hefur okkur tekist að koma íslensku inn í fjölda lausna. Næsta skref er að íslenskan verði í boði í tækjunum sem flestir Íslendingar nota dags daglega, og þar skiptir Apple miklu máli. Við erum reiðubúin að aðstoða við innleiðinguna, enda eru öll nauðsynleg gögn og hugbúnaður tilbúin og opin. Þetta er mál sem varðar okkur öll og ég hvet alla sem bera hag íslenskunnar fyrir brjósti til að skrifa undir og taka þannig undir ákallið,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Hægt er að kynna sér átakið og taka þátt í að skora á Apple hér:
www.tryggjumislensku.is
www.unleashicelandic.is
