Frétt

07. OKTÓBER 2026

Staða gervigreindar á Íslandi - ný útgáfa, áherslur og útlit

Staða gervigreindar á Íslandi - ný útgáfa, áherslur og útlit

Staða gervigreindar á Íslandi - ný útgáfa, áherslur og útlit

Hraður heimur gervigreindar kallar á snarpa miðlun en samtímis að upplýsingar séu réttar og settar fram af heilindum.

Mánudaginn 5. október kynntum við nýja útgáfu af Stöðu gervigreindar á Íslandi (stadagervigreindar.is) með nýju efni, útliti og áherslum.


Við höfum því ákveðið að upplýsingamiðlunin okkar, Staða gervigreindar, verði nú með einfaldara sniði þar sem efni er birt oftar og út frá ákveðnum áherslum hverju sinni.

Útlit og uppsetning vefsins eru sömuleiðis uppfærð, en ætlunin er að geta veitt áhugasömum upplýsingar um stöðu gervigreindarmála á Íslandi á einfaldan og aðgengilegan máta – og nú með hraðari takti.

Af nýju og áhugaverðu efni má nefna umfjöllun um umhverfisáhrif af gervigreind, yfirvofandi reglugerðir um gervigreind (AI act), lögfræðiþjónustu með aðstoð gervigreindar, fullveldisgervigreind og margt fleira.

„Með nýrri útgáfu og breytingu á framsetningu efnisins fáum við betra svigrúm til að miðla hratt og örugglega nýju efni um stöðu gervigreindar á Íslandi. Í daglegu starfi okkar hjá Almannarómi framkvæmum við sjálf ýmsar greiningar, eigum í beinu samtali við sérfræðinga sem vinna í kringum gervigreind og rekumst á áhugaverðar úttektir og umfjallanir samstarfsaðila okkar á erlendri grundu. Vefurinn er ætlaður sem tól okkar til að miðla þessu áfram inn í íslenskt samfélag og tryggja þannig að hér séu til staðar traustar og óháðar upplýsingar um þessa nýju tækni sem er að breyta flestu í kringum okkur.“

Óttar Kolbeinsson Proppé

yfirmaður stefnu, samhæfingar og alþjóðamála og ritstjóri Stöðu gervigreindar á Íslandi.

Lestu nánar á stadagervigreindar.is

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680