Frétt

10. SEPTEMBER 2026

Opnunarviðburður Glóðar

Opnunarviðburður Glóðar

Opnunarviðburður Glóðar

Glóð er opin þjónusta sem veitir m.a. aðgang að reikniafli fyrir íslenska sprota, fyrirtæki og stofnanir.

Þriðjudaginn 1. september var Glóð formlega opnuð við hátíðlega athöfn í Sykursalnum í Grósku.

Viðburðinn var afar vel sóttur, sem ber þess merki um að mikill áhugi sé á reikniafli og þeim möguleikum sem bjóðast með Glóð. 


Opin þjónusta
Glóð er samstarfsverkefni og opin þjónusta sem veitir íslenskum sprotum, fyrirtækjum og stofnunum þróunaraðgang að reikniafli, sérfræðiþekkingu og gögnum. Verkefnið er að hluta styrkt af Evrópusambandinu og EuroHPC Joint Undertaking.  


Tengir Ísland við alþjóðlega ofurtölvu

Að baki Glóð standa sex íslenskar stofnanir: Almannarómur, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Veðurstofa Íslands, Vísindagarðar og Árnastofnun. Verkefnið tengir m.a. Ísland við LUMI, eina öflugustu ofurtölvuEvrópu, sem staðsett er í Finnlandi, gegnum evrópska reikniaflssamstarfið EuroHPC.  



Það var magnað að sjá salinn fullan af fólki úr öllum áttum en sem eiga það sameiginlegt að vilja gera meira við gervigreind en innviðirnir hafa leyft hingað til. Reikniafl hefur lengi verið dýrt og á færi fárra. Með Glóð lækkum við þann þröskuld og leyfum hugmyndum að verða að veruleika sem annars hefðu strandað á kostnaði,“ segir Marín Jónsdóttir, sem leiðir Glóð á Íslandi. 


Reikniafl - fyrir hvað?

En hvað er reikniafl, og af hverju skiptir það svona miklu máli? Svokallaðar ofurtölvur búa yfir gífurlega miklu reikniafli til að geta unnið úr miklu magni gagna eins og gervigreindarverkefni kalla oft á, en reikniafl er einhelsta forsenda gervigreindarbyltingarinnar. Vandinn hefur verið sá að aðgangur að slíku afli er bæði dýr og flókinn, og fyrir sprota og smærri fyrirtæki hefur kostnaðurinn einn og sér verið nær óyfirstíganleg hindrun. Það er einmitt þessi þröskuldur sem Glóð ætlar að lækka. 

Þjónusta Glóðar er opin öllum, hvort sem fólk er að stíga fyrstu skrefin í þróun gervigreindalausna eða komið lengra á veg.

Áhugasamir geta kynnt sér málið og haft samband á glod.ai. 


Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680