Frétt
22. MAÍ 2026

Umsóknarfrestur er frá 22. maí 2026 til og með 20. ágúst 2026
Úthlutunarreglur ráðherra og áherslur verkefnastjórnar eru að finna neðst á þessari síðu
Skerfur veitir styrki til verkefna sem fela í sér innleiðingu og/eða hagnýtingu á íslenskri máltækni, í samræmi við áætlun um íslenska máltækni 2.0.
Umsóknum skal skila með rafrænni umsókn sem nálgast má á eftirfarandi hlekk:
Rafræn umsókn um úthlutun úr Skerfi árið 2026-2027
Styrkjum er úthlutað til verkefna sem styðja við innleiðingu eða þróun hagnýtra endalausna sem byggja á íslenskri máltækni. Styrkjum er því ekki úthlutað til verkefna sem miða að þróun eða viðhaldi grunninnviða máltækni. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir og er úthlutað til eins árs í senn.
Styrkveiting er háð því að verkefni styðji við meginmarkmið máltækniáætlunar um að gera íslensku gjaldgenga í stafrænum heimi og að stuðla að aukinni notkun á íslensku í tæknivörum og hugbúnaði.
Til ráðstöfunar veturinn 2026-2027 eru 60.000.000 kr
Verkefnastjórn máltækniáætlunar leggur mat á umsóknir og verður m.a. horft til þátta á borð við:
→
Mikilvægis verkefnis fyrir hagnýtingu íslenskrar máltækni og/eða mikilvægis verkefnis fyrir innleiðingu nýrra vara, nýrrar þjónustu eða nýrra hugbúnaðarlausna sem nýta máltækni.
→
Mikilvægis verkefnis fyrir aukna verðmætasköpun/bætta þjónustu.
→
Skalanleika verkefnis, þ.e.a.s. hvernig umsækjandi sér það þróast, stækka og nýtast fleirum með það að markmiði að innleiðingin eða hagnýtingin bæti framboð tækni á íslensku og/eða auki þjónustu.
→
Gildi og ávinnings fyrir stöðu íslenskrar tungu í tækni.
Verkefnastjórn máltækniáætlunar þannig skipuð:
→
Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður, skipuð af Almannarómi
→
Magga Dóra Ragnarsdóttir, skipuð af Almannarómi
→
Hallgrímur J. Ámundason, skipaður af menningar- og viðskiptaráðherra
Rafrænt umsóknareyðublað má nálgast hér.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að hafa ekki samband beint við fulltrúa í verkefnastjórn máltækniáætlunar. Fyrirspurnum og ábendingum skal beina á netfangið skerfur@almannaromur.is.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun styrksins sem finna má neðar á þessari síðu. Einnig er hægt að kynna sér fyrri úthlutanir: verkefni árið 2024 og verkefni árið 2025
Úthlutunarreglur Skerfs
Áherslur verkefnastjórnar fyrir úthlutun 2026-2027
Almannarómur fer með umsýslu styrkja menningar- og viðskiptaráðuneytisins til innleiðingar og hagnýtingar íslenskrar máltækni.
Um styrkina gilda reglur nr. 1147/2024 frá ráðherra sem birtust í Stjórnartíðindum 16. október 2024.
Til viðbótar þeim skilyrðum sem þar koma fram skal verkefnastjórn máltækniáætlunar skilgreina reglur úthlutunar og áherslur hverju sinni. Fyrir þessa úthlutun sjóðsins veturinn 2025-2026 eru þær eftirfarandi.
01 Skerfur - Innleiðingar- og hagnýtingarstyrkir máltækniáætlunar
Reglur um úthlutun 2026-2027
1. gr. Styrkhæfi verkefna
2. gr. Umsóknir
3. gr. Viðmið við úthlutun
4. gr. Úthlutun og skilmálar
Samþykkt af verkefnastjórn máltækniáætlunar
Reykjavík, 23.11.25
02 Úthlutunarreglur ráðuneytis
Reglur ráðuneytisins má finna á eftirfarandi hlekk:
Reglurnar voru birtar í Stjórnartíðindum þann 16. október 2024. Mikilvægt er að umsækjendur um styrkinn kynni sér þessar reglur vel og tryggi að verkefni sem sótt er um falli að þeim.
