Frétt

11.11.26

Kalla eftir nánara samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á sviði gervigreindar

Kalla eftir nánara samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á sviði gervigreindar

Kalla eftir nánara samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja á sviði gervigreindar


Tillögur um nánara samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna á sviði gervigreindar voru samþykktar fyrir helgi á ráðstefnu gervigreindarmiðstöðvarinnar New Nordics AI í Kaupmannahöfn. Almannarómur, miðstöð máltækni og gervigreindar, er stofnaðili New Nordics AI fyrir hönd Íslands.  

Tillögurnar voru kynntar ráðherrum og fulltrúum ríkisstjórna landanna og eiga að nýtast í næsta áfanga sameiginlegrar stefnumótunar þeirra um gervigreind. Markmiðið með ráðstefnunni og tillögunum er að efla samkeppnishæfni svæðisins, viðnámsþrótt og getu til að þróa gervigreind og innleiða á breiðum grunni.  


Íslenska sendinefndin stillir sér upp

Íslenska sendinefndin samanstóð af aðilum úr atvinnulífinu, máltækni, gervigreind, háskólunum, menntakerfinu og hinu opinbera.


Tillögur upp úr samtölum hópa

Tillögurnar voru mótaðar á átta hringborðum þar sem saman komu fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífs, fræðasamfélagsins, opinberra stofnana og félagasamtaka frá löndunum átta: Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litáen.  

Umræður þátttakenda fjölluðu m.a. um stafræn gögn, vinnumarkað, menntun, traust, tæknilegan viðnámsþrótt, heilbrigðisþjónustu, orkuinnviði og skilyrði fyrir vöxt gervigreindarfyrirtækja á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. 

Í heildina komu sautján tillögur út úr samtölum dagsins en af þeim má nefna fjórar sem þykja sérstaklega mikilvægar:  


  1. Stöðluð heilbrigðisgervigreind ætti að nýtast þvert á landamæri 

Í dag þurfa öll sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir að vinna sömu greiningar- og gæðaferlin frá grunni. Með sameiginlegum kröfum um rökstuðning og gæðamat gætu lausnir sem þegar hafa sannað sig, eins og við greiningu heilablóðfalls og brjóstakrabbameinsskimun, verið innleiddar mun fyrr.  


  1. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin yrðu sameiginlegur markaður fyrir nýsköpun í gervigreind 

Með samræmdum reglum um gervigreind ásamt prófunarumhverfi og aðgangi að sérfræðiaðstoð gætu nýsköpunarfyrirtæki landanna átta fengið aðgang að samtals 33 milljóna manna markaði. Slíkt myndi auðvelda sprotum að stækka og laða að erlenda fjárfesta.  


  1. Menntakerfið og færniuppbygging til framtíðar 

Með því að flétta gervigreind bæði inn í grunnnám kennara og endurmenntun yrði skólum auðveldað að nota tæknina á gagnrýninn hátt og á traustum faglegum grunni og þannig mætti knýja áfram færniuppbyggingu. 


  1. Tala sem ein rödd til ESB/EES 

Evrópusambandið vinnur nú að því að koma á fót flokkunarkerfi og lágmarkskröfum fyrir gagnaver. Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin standa vel að vígi vegna endurnýjanlegrar orku og nýtingar á afgangshita. Með sameiginlegri afstöðu getur svæðið haft áhrif á mótun reglna sem bæði laða að fjárfestingar og samtímis eru gerðar kröfur um orkunýtni.  


Frá panelumræðum ráðstefnunnar í Kaupmannahöfn


Tími til að bregðast við 

„Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin búa að friðsælum lýðræðissamfélögum með hátt menntastig, traust til stofnana, öflug nýsköpunarsamfélög og jöfnuð. Saman stöndum við á sterkum grunni, með þekkingu og stærð sem ekkert okkar hefur eitt og sér. En metnaður og undirstöður duga ekki ein til, nú er kominn tími til að bregðast við breyttum heimi með þéttara samstarfi og skýrum aðgerðum. Tillögurnar liggja fyrir. Nú er komið að því að hrinda þeim í framkvæmd,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms 


Sameiginlegur metnaður og tækifæri 

„Það er löng hefð fyrir samstarfi milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna til að leysa sameiginleg viðfangsefni. Gervigreind er þar engin undantekning. Tillögur dagsins sýna bæði þann styrk sem felst í sameiginlegum metnaði og þau tækifæri sem felast í enn nánara samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna,“ segir Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.  

Tillögurnar sautján verða nú hluti af áframhaldandi pólitískri umræðu um gervigreind á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum og munu móta næsta áfanga samstarfsins.  

Ætlunin er að breyta sameiginlegum áherslum í áþreifanleg verkefni þvert á landamæri og nýta betur sameinaðan styrk svæðisins.  Nálgast má tillögurnar í heild sinni á heimasíðu New Nordics AI, sjá nánar hér. 

Samstarfsaðilar New Nordics AI eru Almannarómur á Íslandi, AI Sweden, AI Finland, Digital Dogme í Danmörku, TEK Norge í Noregi AI, Robotics Estonia, National AI Centre of Latvia og AI Association of Lithuania  

 

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680