Frétt

20.10.26

Forgangsröðun fjármagns - hvað finnst þér?

Forgangsröðun fjármagns - hvað finnst þér?

Forgangsröðun fjármagns - hvað finnst þér?

Verkefnastjórn máltækniáætlunar hefur gefið út áformaskjal um hvernig fjármagni til kjarnaverkefna ársins 2026 verði varið og óskar eftir umsögnum og athugasemdum hagaðila við áformin.

Opið er fyrir umsagnir til og með miðvikudeginum 28. október.


Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið semur árlega um framkvæmd kjarnaverkefna fyrir 100 m.kr. samkvæmt máltækniáætlun 2. Af fjármagni ársins 2026 hefur þegar verið samið um 10 m.kr. til framhalds verkefnis sem hófst árið 2025.

Verkefnastjórnin leggur til að þeim 90 m.kr. sem eftir standa verði varið annars vegar í aukna gagnaöflun, 60 m.kr., og hins vegar í ný mælipróf, 30 m.kr.

Mæliprófin eiga að mæla hversu vel tæknin ræður við íslensku eða í séríslensku samhengi. Gagnaöflunarverkefnið verður unnið í nánu samráði við ráðuneytið.


Áformaskjalið, með nánari upplýsingum, má nálgast í heild sinni hér 

Meðal þess sem er til skoðunar er að vinna gögn frá RÚV eða stóran hluta safnkosts Landsbókasafns Íslands inn í Risamálheildina. Um mæliprófin verður haldið opið kall dagana 2. til 13. nóvember, og í áformaskjalinu er listi yfir próf sem kemur til greina að setja í kallið. 

Verkefnastjórnin óskar meðal annars eftir athugasemdum við áformin í heild, ábendingum um hvaða mælipróf ætti að þróa fyrst og hvaða próf kunni að vanta á listann.


Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680