Frétt

14. SEPTEMBER 2026

Gervigreindarsamstarf Norðurlandanna og Eistlands

Gervigreindarsamstarf Norðurlandanna og Eistlands

Gervigreindarsamstarf Norðurlandanna og Eistlands

Viljayfirlýsingin snýr m.a. að samstarfi um reglugerðir, tungumál og gervigreindardrifið hagkerfi.

Eistneska gervigreindarmiðstöðin AI & Robotics Estonia AIRE og norræna gervigreindarmiðstöðin New Nordics AI hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf


New Nordics AI var formlega stofnuð árið 2025 en Almannarómur er einn stofnenda hennar og hefur verið leiðandi í að byggja upp starfsemi hennar og stefnumótun.


Samstarf AI & Robotics Estonia AIRE og New Nordics AI snýr að fjórum sviðum:

  • Að hrinda gervigreindarreglugerð ESB (AI Act) í framkvæmd

  • Að byggja gervigreind sem skilur tungumál okkar og samfélög

  • Að koma gervigreind í raunverulega notkun hjá fyrirtækjum og í atvinnulífi

  • Að búa fólk undir gervigreindardrifið hagkerfi


Hagnýtur ávinningur fyrir fólk

„Við trúum á þennan metnað, því við höfum þekkinguna, traustið, rannsóknargetuna og fyrirtækin sem þarf til að láta hann verða að veruleika. Lönd sem deila svipuðum gildum og leggja áherslu á áreiðanleika þurfa að vinna saman, svo fólkið okkar og fyrirtækin geti haft raunverulegan, hagnýtan ávinning af gervigreind,“ segir Katre Eljas, forstöðumaður AIRE.

Styrkurinn býr í heildinni

„Við Íslendingar erum vön því að bera okkur saman við umheiminn miðað við höfðatölu. Það fyllir mann því auðmýkt að heimsækja Eistland og sjá hversu langt þau eru komin í stafrænni þróun og nýtingu gervigreindar. Við getum lært margt af AIRE og eistneska vistkerfinu í heild sinni. Ekkert eitt ríki á okkar svæði getur afrekað allt upp á eigin spýtur, en saman búum við yfir getunni, traustinu og metnaðinum til að verða leiðandi á heimsvísu í því hvernig gervigreind er innleidd og nýtt til góðs.“ Gísli Ragnar Guðmundsson, gervigreindarsérfræðingur og forstöðumaður New Nordics AI á Íslandi.


Viljayfirlýsingin var undirrituð til þriggja ára á Estonia-Iceland Business Forum, að viðstöddum Kristina Kallas, mennta- og rannsóknaráðherra Eistlands, og Loga Má Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands.

Myndir: Signe Reitav

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680