Frétt
02.10.26

Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford Institute for Human-Centered AI og framkvæmdastjóri Stanford Digital Economy Lab, var aðalgestur morgunverðarfundar Almannaróms og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins í Grósku.
Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford Institute for Human-Centered AI og framkvæmdastjóri Stanford Digital Economy Lab, var aðalgestur morgunverðarfundar Almannaróms og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins í Grósku síðastliðinn föstudag.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, opnaði fundinn áður en Erik hélt áhrifamikið erindi fyrir fullum sal gesta. Erik er sonur Ara Brynjólfssonar vísindamanns og Marguerite Brynjolfsson en Ari var einn af merkustu og virtustu kjarneðlisfræðingum Íslands á alþjóðavettvangi. Haldið var upp á 100 ára afmæli Ara fyrir stuttu með svokallaðri Aravöku sem fór fram á Akureyri.
Rannsakar áhrif gervigreindar á vinnumarkað
Erik er einn þekktasti hagfræðingur heims og hefur verið leiðandi í rannsóknum á áhrifum gervigreindar á vinnumarkaðinn. Hann segir framtíð vinnumarkaðarins ekki fyrir fram ráðna heldur sé hún undir okkur sjálfum komin. Næstu skref séu þannig spurning um val fremur en örlög.

Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford Institute for Human-Centered AI og framkvæmdastjóri Stanford Digital Economy Lab:
„Tæknin ræður ekki örlögum okkar, framtíðin er hönnunarverkefni. Því öflugri sem verkfærin verða, þeim mun meiri völd höfum við til að breyta heiminum, og þeim mun meira skipta gildin okkar máli. Ég vil sjá gervigreind sem eflir fólk í starfi og styrkir stöðu þess, ekki tækni sem safnar völdum á fáar hendur.“
Jöfn dreifing valds og auðs
Framtíðarhorfur starfa og öryggismál í gervigreind eru meðal helstu áhyggjuefna sérfræðinga og hafa verið mikið til umræðu undanfarið. Í erindi Eriks nefnir hann tvær mögulegar útkomur í þeim efnum; sé tæknin aðeins notuð til að leysa fólk af hólmi telur hann hætt við að völd og auður safnist á fáar hendur. Sé hún hins vegar notuð til að efla getu fólks í störfum styrkist staða vinnandi fólks og ávinningurinn dreifist víðar. Þannig megi nýta tæknina til að efla fólk fremur en að skipta því út.

Almennar breytingar á vinnuháttum
Að því sögðu er það óumflýjanlegt að eðli starfa muni breytast að mati Eriks, sér í lagi hvernig við nálgumst verkefni og stýrum þeim með aðstoð gervigreindar. Í því samhengi telur hann ekki ólíklegt að fleiri störf verði eins konar „forstjórastörf“ þar sem starfsmenn stýra hópi gervigreindarkerfa við úrlausn fjölbreyttra verkefna. Verðmætasta færnin verði því getan til að spyrja réttu spurninganna, greina hvar tækifærin liggja og skilgreina verkefni.
Verður aukið atvinnuleysi?
Þrátt fyrir jákvæða sýn segir Erik að ekki megi líta fram hjá ákveðnum áhyggjuefnum og benti hann sérstaklega á lakari framleiðni Íslands síðastliðinn áratug, rétt eins og Bandaríkjanna, auk vísbendinga um vaxandi atvinnuleysi meðal ungs fólks. Því sé mikilvægt að þjálfa yngra fólk í að leiða verkefni en ekki aðeins framkvæma þau. Fyrirtæki þurfi jafnframt að horfa á tækifærin sem felast í gervigreind, önnur en baramögulegan sparnað sem kann að hljótast af henni og nýta tæknina frekar til að efla starfsfólk, auka færni þess og skapa þannig meiri verðmæti.
Jöfn dreifing ávinnings
Þrátt fyrir áskoranir segir Erik svigrúmið mikið. Hann spáir því að framleiðnivöxtur á Íslandi geti tvöfaldast fyrir árið 2030 en að stærsta spurningin sé ekki tæknin sjálf heldur hvort ávinningurinn dreifist eða safnist á fáar hendur og þar með pólitísk völd. Þar taldi hann Ísland vel í stakk búið til að fara rétt að og vera öðrum þjóðum fyrirmynd. Jöfnuður og gildi um velferð þjóðarinnar skapi tækifæri til að fara íslensku leiðina þar sem gervigreind er nýtt í þágu vinnandi fólks sem önnur og stærri ríki, þar á meðal Bandaríkin, gætu litið til.

Ísland stýrir eigin framtíð
Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra,
tók undir með Erik og sagði verkefnið ekki aðeins að fylgjast með þróuninni heldur að skapa skilyrði til þess að gervigreind sé nýtt með ábyrgum hætti: „Til að auka framleiðni, nýsköpun og bæta þjónustu samhliða því að undirbúa fólk undir þær breytingar sem verða á störfum þess. Ég tek undir með Erik um að líta á gervigreind sem verkfæri sem eykur getu okkar. Hana ætti að þróa með það að leiðarljósi að gera fólk færara, en ekki óþarft. Gervigreind getur sannarlega breytt því hvernig við vinnum en það er okkar að skilgreina verkefnin og taka ákvarðanirnar.“
Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms:
„Ísland stýrir eigin gervigreindarframtíð, bæði á vinnumarkaði og í öðru. Stundum hjálpar að heyra skilaboðin að utan og í þetta skiptið bárust þau skýrt frá Erik, einum þekktasta hagfræðingi heims á sviði vinnumarkaðs og gervigreindar. Við eigum samfélag sem er ríkt af trausti og jafnrétti og ef við höldum vel á spöðunum geta þessir styrkleikar og fleiri skapað einstakan grundvöll til að nýta gervigreind til góðs á Íslandi.“
