Frétt
11. ÁGÚST 2026

Markmið Almannaróms með styrkjunum er að styrkja íslenskt máltæknifólk til að sækja sér þekkingu og byggja upp tengsl í evrópska máltæknisamfélaginu.
Almannarómur hefur valið fjóra styrkþega til að sækja MALT-sumarskólann, fjögurra daga evrópskan sumarskóla um aðferðir í máltækni, sem haldinn verður í Château de Villers-Cotterêts, rétt utan Parísar, dagana 25. til 28. ágúst.
Áhuginn á sumarskólanum var mikill og bárust alls fimmtán umsóknir úr ólíkum áttum, bæði úr rannsóknarsamfélaginu og atvinnulífinu.
Styrkþegar Almannaróms
Annika Simonsen, doktorsnemi í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Doktorsverkefni hennar snýr að aðlögun stórra mállíkana að germönskum tungumálum og er hluti af Evrópuverkefninu TrustLLM.
Guolin Fang, doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík og starfsmaður Mál- og raddtæknistofu Gervigreindarseturs HR. Rannsóknir hans snúa að talgreiningu og nýjum forvinnsluaðferðum fyrir talgögn.
Alfa Magdalena Birnir Jórunnardóttir, meistaranemi í máltækni við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað að máltækniverkefnum á íslenskusviði Árnastofnunar.
Jón Atli Tómasson, deildarstjóri Sjálfvirkni- og spunagreindarseturs Íslandsbanka, sem kostar einn starfsmanna sinna í ferðina.
Nýjustu aðferðir kenndar
Sumarskólinn er haldinn af ALT-EDIC, Evrópusamstarfi í máltækni, og Tækniháskólanum í Eindhoven með stuðningi Evrópuverkefnisins LLMs4EU. Umfjöllunarefni hans eru gögn og matsaðferðir fyrir mállíkön, tvö af stærstu úrlausnarefnum máltækninnar í dag.
Frekari tækifæri til stuðnings
Almannarómur vill benda fyrirtækjum á að reglulega koma upp tækifæri til þátttöku í sambærilegum styrkja- og stuðningsverkefnum fyrir íslenskt máltækni- og gervigreindarsamfélag. Við óskum hópnum góðrar ferðar og hlökkum til að heyra af reynslu hans þegar heim er komið.
