Frétt
8. SEPTEMBER 2026

Atli Þór Jóhannsson hefur gengið til liðs við Almannaróm, miðstöð máltækni og gervigreindar, sem sérfræðingur í gervigreind. Hann vinnur þar að þverfaglegum stefnumótunarverkefnum með áherslu á gervigreindog samfélagsáhrif hennar.
Atli Þór Jóhannsson hefur gengið til liðs við Almannaróm, miðstöð máltækni og gervigreindar, sem sérfræðingur í gervigreind. Hann vinnur þar að þverfaglegum stefnumótunarverkefnum með áherslu á gervigreindog samfélagsáhrif hennar. Með komu Atla styrkir Almannarómur enn við þekkingu og færni á sviði gervigreindar sem er í takt við útvíkkaða stefnu og starfssvið miðstöðvarinnar.
Atli hefur fjölbreyttan bakgrunn úr nýsköpun, tækni og samfélagsverkefnum en hann starfaði síðast sem tæknistjóri Katla Carbon. Í störfum sínum hefur hann unnið á mörkum nýsköpunar, tækni og samfélagslegralausna, meðal annars að loftslagslausnum og hringrásarkerfum. Atli er einnig meðstofnandi Samtaka um mannvæna tækni.
„Við stöndum frammi fyrir einu mikilvægasta samfélagsverkefni samtímans: að móta hvernig gervigreind er þróuð og nýtt, og tryggja að hún þjóni samfélaginu. Gervigreind er hratt að verða hluti af innviðum ogákvarðanatöku samfélagsins og fléttast inn í allt frá stjórnsýslu, heilbrigðisþjónustu og menntun til atvinnulífs, upplýsingamiðlunar, tungumáls og menningar. Það er því mikilvægt að taka meðvitaðar ákvarðanir um hvert við viljum stefna, hvaða hlutverki við viljum að tæknin gegni, hver njóti ávinningsins og hvort hann dreifist víða. Þar gegnir Almannarómur mikilvægu hlutverki,“ segir Atli.
„Það er gríðarlega spennandi að ganga til liðs við Almannaróm og fá að taka næsta skref í þeirri vinnu sem hefur verið mér hugleikin síðustu ár, með gríðarlega hæfu fólki sem býr yfir ólíkri reynslu og sýn, breidd semer nauðsynleg til að takast á við verkefni af þessari stærðargráðu,“ segir Atli.
„Við erum virkilega stolt að hafa fengið Atla Þór til liðs við okkur en hann býr yfir bæði djúpum tæknilegum bakgrunni og hefur einlægan áhuga á samspili fólks og tækni. Eitt meginhlutverk okkar er að sækja framfyrir Ísland í stafrænum heimi svo samfélagið okkar geti fullnýtt tækifæri tækninnar á eigin forsendum. Atli færir þannig sína einstöku sýn inn í starfsemi Almannaróms og mun svo sannarlega styrkja okkur tilárangurs,“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
