Frétt

27. JÚLÍ 2026

Almannarómur leitar að máltæknifólki til að bjóða í sumarskóla í Frakklandi

Almannarómur leitar að máltæknifólki til að bjóða í sumarskóla í Frakklandi


Opið fyrir umsóknir til 5. ágúst 2026 í almannaromur@almannaromur.is

Almannarómur ætlar að bjóða þremur efnilegum einstaklingum í máltækni og gervigreind að sækja MALT Summer School, fjögurra daga evrópskan sumarskóla um aðferðir í máltækni, sem haldinn verður í Château de Villers-Cotterêts, rétt utan Parísar, í Frakklandi dagana 25. til 28. ágúst. Almannarómur greiðir allan kostnað fyrir viðkomandi; þátttökugjald, ferðir og gistingu. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst.


Skólinn er haldinn af ALT-EDIC, Evrópusamstarfi í máltækni, og Tækniháskólanum í Eindhoven með stuðningi frá Evrópuverkefninu LLMs4EU. Umfjöllunarefni skólans verða gögn og matsaðferðir fyrir mállíkön, tvö af stærstu úrlausnarefnum máltækninnar í dag. Þar koma saman doktorsnemar, ungt rannsóknarfólk og sérfræðingar úr atvinnulífinu víðs vegar að úr Evrópu.


Fyrirlesarar skólans koma úr fremstu röð í evrópskri máltækni og gervigreind. Yfirlit yfir þá má finna á vef sumarskólans.


Markmið Almannaróms með boðinu er að styrkja íslenskt máltæknifólk til að sækja sér þekkingu og byggja upp tengsl í evrópska máltæknisamfélaginu. Ísland hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð þegar kemur að uppbyggingu gagna og innviða fyrir minni tungumál og með þátttöku í viðburðum sem þessum tryggjum við að við höldum áfram að deila okkar reynslu og læra af öðrum.

Fyrir hverja er námskeiðið?


Skólinn er ætlaður nemum eða ungu fólki á vinnumarkaði sem starfar á sviði máltækni. Öllum stendur til boða að sækja um sem starfa við eða stunda nám í máltækni eða gervigreind á Íslandi, hvort sem er í háskóla, hjá rannsóknarstofnun eða fyrirtæki.

Hvernig sæki ég um?


Umsóknin er einföld. Sendu okkur stutta kynningu á þér þar sem fram kemur:

Hver þú ert og hvar þú starfar eða stundar nám.

Á hvaða stigi menntunar í máltækni eða skyldum greinum þú ert, eða hvaða námi þú hefur lokið. Ef þú starfar hjá fyrirtæki þá biðjum við um helstu upplýsingar um verkefni þín.

Helstu áhugasvið þín innan máltækninnar.

Hvernig skólinn mun nýtast þér.

Umsóknin skal send á almannaromur@almannaromur.is fyrir 5. ágúst 2026. Valið verður úr umsóknum með það fyrir augum að hópurinn endurspegli breidd íslensks máltæknisamfélags sem best.


Nánari upplýsingar um skólann og dagskrá hans má finna á vef sumarskólans.

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680

Viltu vinna með Almannarómi eða ert með hugmynd?


Sendu okkur tölvupóst → almannaromur@almannaromur.is

Gróska, Bjargargata 1

102 Reykjavík

Kt. 621214-2680