Tilkynning
19. DESEMBER 2025

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætis-ráðherra Íslands, hefur fyrir hönd Almannaróms tekið við stöðu stjórnar-formanns nýrrar gervigreindarmiðstöðvar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, New Nordics AI. Tilkynnt var um fyrstu stjórn miðstöðvarinnar í dag 19. desember 2025.
Fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI
Stjórn New Nordics AI mun gegna lykilhlutverki í að tryggja að starf miðstöðvarinnar skili sér í sameiginlegri norrænni verðmætasköpun. Meginhlutverk miðstöðvarinnar er að efla samstarf á svæðinu, hraða upptöku gervigreindar og styrkja samkeppnishæfni svæðisins í alþjóðlegu samhengi.
Almannarómur, með stuðningi menningar-, nýsköpunar- ogháskólaráðuneytisins, er stofnaðili miðstöðvarinnar fyrir hönd Íslands. Verkefnið hlaut jafnframt styrk frá Norrænu ráðherranefndinni.
Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
New Nordics AI var formlega stofnuð í október á þessu ári og byggir á samstarfi fimm leiðandi aðila í gervigreind á svæðinu; Almannróms (Íslandi), AI Sweden (Svíþjóð), AI Finland (Finnlandi), Digital Dogme (Danmörku) og TEK Norge (Noregi).
Þessar stofnanir þjóna sem starfsstöðvar miðstöðvarinnar í hverju landi fyrir sig og vinna náið með höfuðstöðvunumí Stokkhólmi. Ætlunin er að Eystrasaltsríkin taki þátt í miðstöðinni á komandi misserum.
Stjórn New Nordics AI samanstendur af sex meðlimum, einum frá heimalandi hvers stofnanda auk fulltrúa Norrænu ráðherranefndarinnar og verður sem áður segir undir forystu Katrínar Jakobsdóttur.
Dýrmæt reynsla hér á landi
"Ég er afar spennt að taka að mér hlutverk fyrsta stjórnarformanns þessarar mikilvægu miðstöðvar. Þar ætlum við að kortleggja þau nýju tækifæri sem gervigreindin skapar og tryggja að þau nýtist til að efla norræna verðmætasköpun, ásamt því að hvetja til rannsókna, þróunar og innleiðingar á gervigreind. Samtímis mun stjórnin hafa það að leiðarljósi að varðveita sameiginleg norræn gildi okkar: lýðræði, mannréttindi og jafnrétti, í virku samtali við fyrirtæki og stjórnmálamenn á svæðinu" segir Katrín Jakobsdóttir stjórnarformaður.
„Við búum að dýrmætri reynslu hér á Íslandi þar sem við höfum lagt áherslu á að íslensk tunga verði gjaldgeng í heimi nýrrar tækni“
Kartrín Jakobsdóttir
Stjórnarformaður New Nordics AI
Hraða ábyrgri innleiðingu
„Sem virtur og þekktur leiðtogi á alþjóðasviðinu býr Katrín yfir mikilli pólitískri reynslu af Norðurlöndunum og nýtur víðtæks trausts. Aðkoma Katrínar að New Nordics AI setur skýran tón og markarstefnu um að brúa bilið á milli opinberra stofnana, iðnaðar og alþjóðlegra aðila.
Bakgrunnur Katrínar fellur vel að markmiðum miðstöðvarinnar um að hraða ábyrgri innleiðingu gervigreindar, efla samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og byggja upp alþjóðlega viðurkennda og kraftmikla svæðisbundna starfsemi á sviði gervigreindar. Við erum afar stolt af því að Katrín sé fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI og við hlökkum til samstarfsins.“ segir Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
Stjórn New Nordics AI skipa:
Katrín Jakobsdóttir (Ísland)
Staffan Truvé (Svíþjóð)
Maria Ervik Løvold (Noregur)
Haktan Bulut (Danmörk)
Ville Voipio (Finnland)
Cecilia Leveaux (Norræna ráðherranefndin)
