Frétt
ágúst 2026

Markmið Almannaróms með styrkjunum er að styrkja íslenskt máltæknifólk til að sækja sér þekkingu og byggja upp tengsl í evrópska máltæknisamfélaginu.
Almannarómur hefur valið fjóra styrkþega til að sækja MALT-sumarskólann, fjögurra daga evrópskan sumarskóla um aðferðir í máltækni, sem haldinn verður í Château de Villers-Cotterêts, rétt utan Parísar, dagana 25. til 28. ágúst.
Áhuginn á sumarskólanum var mikill og bárust alls fimmtán umsóknir úr ólíkum áttum, bæði úr rannsóknarsamfélaginu og atvinnulífinu.
Styrkþegar Almannaróms eru:
→
Annika Simonsen, doktorsnemi í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Doktorsverkefni hennar snýr að aðlögun stórra mállíkana að germönskum tungumálum og er hluti af Evrópuverkefninu TrustLLM, sem ellefu fyrirtæki og stofnanir í sjö Evrópulöndum standa að. Hún hefur meðal annars gefið út fjölda opinna gagnasafna fyrir færeysku.
→
Guolin Fang, doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík og starfsmaður Mál- og raddtæknistofu Gervigreindarseturs HR. Rannsóknir hans snúa að talgreiningu og nýjum forvinnsluaðferðum fyrir talgögn og hefur hann einnig unnið við raddasöfnun og þjálfun talgervlalíkana fyrir íslensku og ensku. Hann kynnir rannsóknir sínar á Eusipco-ráðstefnunni í Brugge í beinu framhaldi af sumarskólanum.
→
Alfa Magdalena Birnir Jórunnardóttir, meistaranemi í máltækni við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað að máltækniverkefnum á íslenskusviði Árnastofnunar og vann í sumar hjá Miðeind að gerð nýrra mæliprófa fyrir íslenskukunnáttu mállíkana.
→
Til þess að gera Almannarómi kleift að fjölga styrkþegum kostar Íslandsbanki einn starfsmanna sinna í ferðina, Jón Atla Tómasson, deildarstjóra Sjálfvirkni- og spunagreindarseturs bankans. Hann leiðir ellefu manna teymi sérfræðinga sem vinnur að þróun og hagnýtingu spunagreindarlausna innan bankans.
Fulltrúar Íslands í skólanum verða því fjórir og endurspeglar hópurinn vel breidd íslensks máltæknisamfélags.
Nýjustu aðferðir kenndar
Sumarskólinn er haldinn af ALT-EDIC, Evrópusamstarfi í máltækni, og Tækniháskólanum í Eindhoven með stuðningi Evrópuverkefnisins LLMs4EU. Umfjöllunarefni hans eru gögn og matsaðferðir fyrir mállíkön, tvö af stærstu úrlausnarefnum máltækninnar í dag, og þar koma saman doktorsnemar, ungt rannsóknarfólk og sérfræðingar úr atvinnulífinu víðs vegar að úr Evrópu.
Frekari tækifæri til stuðnings
Markmið Almannaróms með styrkjunum er að styrkja íslenskt máltæknifólk til að sækja sér þekkingu og byggja upp tengsl við evrópska máltæknisamfélagið.
Almannarómur fagnar aðkomu Íslandsbanka og vilja bankans til að fjölga styrkþegum. Þannig styður bankinn við uppbyggingu þekkingar á nýjustu aðferðum í máltækni og gervigreind hjá sér.
Almannarómur vill benda fyrirtækjum á að reglulega koma upp tækifæri til þátttöku í sambærilegum styrkja- og stuðningsverkefnum fyrir íslenskt máltækni- og gervigreindarsamfélag. Hægt er að hafa samband í almannaromur@almannaromur.is fyrir frekari upplýsingar um slíkt.
Við óskum hópnum góðrar ferðar og hlökkum til að heyra af reynslu hans þegar heim er komið.
Nánari upplýsingar um skólann og dagskrá hans má finna á vef sumarskólans.
